Rúv er ekki stærsta ógnin

RÚV er ekki stærsta ógnin á fjölmiðlamarkaði, heldur erlendar frétta- og efnisveitur sem gera hér enskumælandi strandhögg svo íslenskan má sín lítils, svo og innlend framleiðsla á fréttum og dagskrárefni. RÚV á heldur ekki að fara af auglýsingamarkaði; fyrirtæki verða áfram að hafa aðgang að stærsta miðlinum, því auglýsingar eru fyrst og síðast upplýsingar.

RÚV á hins vegar að hætta á kostunarmarkaði, enda rikisstofnun vart sæmandi að fara þar jafn geyst og raun ber vitni; menningarstofnun á að vera hafin yfir slíka ölmusu. Þann hluta tekna hennar á að bæta upp með hærra útvarpsgjaldi sem er nú afar lágt. Og RÚV á að einbeita sér að rekstri sterkrar fréttastofu og framleiðslu úrvals dagskrárefnis á íslensku.

Einkareknir fjölmiðlar eru í vörn. Það er ekki RÚV að kenna. Það er ríkinu að kenna sem rauf einokun RÚV á markaði fyrir rífum 30 árum án þess að gera ráð fyrir einkarekstrinum sjálfum. Laga þarf skattalegt umhverfi þeirra, styrkja þá til framleiðslu vandaðs efnis og veita fjármunum til rannsóknarblaðamennsku - og gefa þeim aukin færi á að tala og skrifa góða ísensku.