Ráðherra er maður að meiri

Ánægjulegt og jafnframt óvenjulegt var að heyra viðbrögð sjávarútvegsráðherra um helgina við áliti Umboðsmanns Alþingis á embættisfærslu hans í málefnum Fiskistofu. Umboðsmaður komst að þeirri niðurstöðu að upplýsingagjöf ráðherrans til starfsfólks stofunnar um flutning hennar til Akureyrar hefði verið áfátt og ekki farið að reglum um góða stjórnsýslu.


Viðbrögð ráðherrans voru óvenjuleg í ljósi hefðarinnar í íslenskum stjórnmálum. Hann kvaðst vera sammála Umboðsmanninum. Embættisfærsla hans hefði verið gagnrýnisverð og hann hefði mátt gera betur, þótt hann hefði talið sig vera að gera rétt á sínum tíma; menn gætu jú alltaf bætt ráð sitt: "Allir eiga að geta lært af mistökum sínum," sagði ráðherrann orðrétt.


Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra er maður að meiri. Hann óx af þessum viðbrögðum sínum. Hann er meiri stjórnmálamaður fyrir vikið.


Það ánægjulega við þessi tíðindi - og vel að merkja; þetta eru tíðindi í stjórnmálahefðinni - er að hér hefur Sigurður Ingi kennt öðru fólki í stjórnmálum að það er engin nauðsyn að taka gagnrýni á störf sín óstinnt upp. Það er hægt að horfa á sjálfan sig sem breyskan mann sem getur gert betur. Það er jafnvel hægt fyrir íslenskan stjórnmálamann.


Og við þetta er aðeins einu að bæta: Svona eiga sýslumenn að vera.