Í umræðunni um óhefðbundnar lækningar sem skollið hefur eins og brimskafl á þjóðinni undanfarna daga er réttast að anda nokkuð rólega og gefa hjartanu pláss til að slá. Það er eitt að selja ruglumbull til dauðvona sjúklinga, en það er annað að afgreiða þúsund ára lækningaaðferðir sem hvert annað ekkisens rugl.Talsmenn nútímalæknisfræði hafa á stundum gengið fram með nokkru offorsi þegar stórsjór umræðunnar um óhefðbundnar lækningar rís og hvítnar. Þeir benda á þau mikilvægu rök að lækningar verði að gagnast fólki, en segja jafnframt að þær verði að vera viðurkenndar af þar til bærum fagaðilum.Eftir sem áður mun fólk þó leita sér þeirra lækninga og aðstoðar við kvillum sem það telur sér henta. Læknar munu ekki stöðva þá viðleitni fólks, sem finnur til krankleika, að leita allra leiða til að finna bót sinna meina. Þar geta margar elstu aðferðir hugleiðslu og heilunar og annarra ráða komið að gagni, eins og dæmin sanna.Það er hollt fyrir samfélagið að rökræða ágæti hefðbundinna og óhefðbundinna lækninga, enda er það svo að það sem nýtist einum getur verið ömuglegt fyrir annan. Þeir sem takast á um þetta efni eiga hins vegar að vera sammála um að taka þarf á lygurunum sem reyna að græða á fársjúku fólki.
Óhefðbundnar lækningar
Fleiri fréttir
Nýjast