Nutella creme brulee - uppskrift

300 ml. rjómi

1 vanilustöng

100 gr. hrásykur + smá til að dusta yfir þegar tilbúið

3 eggjarauður

2 kúptar tsk. Nutella

Aðferð:

  • Vanillustöngin skorin í tvennt og skafin.
  • Rjómi og vanilla hituð í potti að suðumarki og síðan látin kólna aðeins
  • Á meðan eru eggjarauðurnar og hrásykurinn þeyttar.
  • Rjómablöndunni er hellt í mjórri bunu saman við eggin og hrært vel á meðan til þess að eggin skilji sig ekki. 
  • Nutella er sett í botninn á 2 x litlum formum og blöndunni helt yfir.
  • Bakað í vatnsbaði við 160°C í c.a. 40 - 45 mín. 

Smá hrásykri stráð yfir formin og kveikt í .

Geymt í kæli þar til á að njóta. 

Hér getur þú horft á þáttinn í heild sinni