Minning: pétur h. blöndal

Með Pétri H. Blöndal er fallinn einn merkilegasti alþingismaður þjóðarinnar á síðustu áratugum. Hann var heill maður, heiðarlegur og vinnusamur með afbrigðum.

Pétur fór alltaf sínar eigin leiðir. Hann lét aldrei segja sér fyrir verkum. Hvorki fólk né flokk. Ef hægt er að tala um einhvern alþingismann á seinni árum sem hafi fylgt sannfæringu sinni þá er það Pétur H. Blöndal.

En hann tók samt rökum. Hann gat verið laginn við að hlusta á fólk, einkum ef það hafði lög að mæla, gat fært honum ný og mikilvæg sannindi eða málefnalega nýja sýn á margumrædd mál.

Hann var félagslegur einfari, íbygginn og djúpvitur.

Það voru forréttindi að vinna með honum að flóknum úrlausnarefnum, ekki síst á þeim tímum þegar þjóðin var að vinna sig út úr sína mesta efnahagslega áfalli frá stofnun lýðveldisins. Þá hugsaði hann skýrt sem aldrei fyrr. Og missti aldrei sjónar á aðalatriðinu; að vinna fyrir þjóð sína fyrst og fremst en leggjast ekki í pólitíska sérgæsku, ellegar innmúraða flokkshollustu. Hann var hafinn yfir dægurþrasið, stærri maður en svo að hann léti einhver óhugsuð ummæli  eða útúrsnúning hafa áhrif á sig. 

Hann hélt alltaf sínu striki.

Fyrir starf hans allt og góðmennsku ber að þakka.