Mikilvægi mismunandi skoðana

Kosningabaráttan er að hefjast, enda fáeinar vikur þar til þjóðin kýs fulltrúa sína á löggjafarsamkunduna á Austurvelli. Efalítið mun eitthvað hvína í tálknum þegar pólitíkusarnir setjast á rökstólana fram að kjördegi, en þá er rétt að hafa mikilvægt atriði í huga; virðum skoðanir hvers annars, unum því að að fólk hafi mismunandi skoðanir.

Lýðræði felur í sér skoðanaskipti. Lýðræði á að ýta undir málefnalega umræðu. Og lýðræði á að vera upplýsandi og gagnlegur vettvangur þar sem fram fer uppboð á hugmyndum og stefnum og verklagi. En þá er líka eins gott hefja umræðuna upp úr gamaldags skotgröfum sem hafa aðeins gert ráð fyrir einni réttri skoðun, öðrum röngum.

í lýðræðislegri umræðu er nauðsynlegt að gera ráð fyrir margvíslegum skoðunum. Því hefur ekki alltaf verið að fagna. Mesta púðrið í pólitíkinni hefur oft og einatt farið í það að tala niður skoðanir sessunautarins fremur en að standa fyrir eigin stefnu. Það hefur engu skilað nema niðurrifi og niðrandi ummælum. Pólitíkin á miklu betra skilið.