Frétta- og upplýsingavefurinn hringbraut.is, sem rekinn er samhliða samnefndri sjónvarpsstöð mun hafa mannvirðingu og umburðarlyndi að leiðarljósi í öllum skrifum sínum og fréttaþjónustu. Hann mun ekki vera með athugasemdakerfi í tengslum við fréttir, greinar og pistla, en reka þess í stað víðsýna fréttastefnu þar sem ekki verður gert lítið úr skoðunum fólks.
Efni vefsins er fjölþætt, allt frá almennum fréttum og lífsstílsgreinum um heilsu, heimili, menningu og tómstundir til málefnalegra pistla áhrifafólks í samfélaginu um þjóðmál og pólitík. Þá eru ónefndar stuttar klippur úr sjónvarpsþáttum Hringbrautar með fréttnæmum, fræðandi eða hnyttnum ummælum gesta , en þess utan hýsir vefurinn alla þættina í heild sinni.
Á hringbraut.is verður að finna hringiðu kröftugrar og upplýsandi þjóðmálaumræðu sem mun ekki síst snúast um bættan hag heimila og fyrirtækja í landinu og hvernig hægt er að auka lífsgæði og afkomu alls almennings. Til að svo megi verða þarf að skoða alla möguleika Íslands - og útiloka ekkert fyrirfram - eins og raunar heilbrigð blaðamennska hefur alltaf verið óhrædd við.