Langvarandi og að því er virðist eilífur launamunur kynjanna, jafnt á almennum vinnumarkaði og þeim opinbera er eitt helsta mein þjóðfélagsins. Það felur ekki einasta í sér óréttlæti og lítllsvirðingu gagnvart störfum kvenna sem einatt bera minna úr býtum fyrir sambærileg störf og karlar vinna; þetta mein er mannfjandsamlegt.
Á 35 ára fréttamannsferli mínum, sem hófst litlu eftir kvennafrídaginn um miðjan áttunda áratug síðustu aldar, hef ég reglulega stungið niður penna til að fjalla um þennan vanda sem felst í óútskýrðum launamun; í fyrstu sem barnlaus maður en smám saman sem faðir þriggja stúlkna og jafn margra drengja. Og eftir því sem blessuð börnin mín hafa stálpast hvert með sínu lagi og leitað sér meiri og betri menntunar hef ég verið áminntur um það reglulega að helmingur barnanna minna á von á minni launum en hin helftin af því einfaldlega að stelpurnar mínar eru og verða minna metnar úti á vinnumarkaðnum.
Það er bara svo.
Hverju á ég sem fullorðinn maður að svara þegar stelpurnar mínar víkja að mér spurningunni um þetta siðrof í samfélaginu sem ennþá er við lýði þegar nokkuð er liðið á nýja öld, já, 40 árum eftir kvennafrídaginn, eða sem nemur hálfri mannsævi? Á ég bara að yppta öxlum og segja si sona að þetta hafi berið alltaf verið með þessum hætti og það gangi erfiðlega að breyta þessu, en vonandi lagist þetta með tíð og tíma?
Nei, ekki aldeilis. Þetta lagast nefnilega ekki með tíð og tíma.
Og ástæðan er sennilega einfaldlega sú að við sem samfélag tökum þetta þjóðarmein ekki nógu alvarlega.
Samfélag okkar er ennþá gegnsýrt af karlmennsku og karllægum gildum - og á sama hátt og alltof margir landsmenn sjá í gegnum fingur sér þegar kemur að því að greiða fullt verð til samfélagsins þá eru ennþá alltof margir sem hugsa sem svo að karlmenn séu bara einfaldlega duglegri að ná sér í vinnu eða koma sér áfram innan fyrirtækjanna - og þar sé skýringin komin á því að þeir beri meira úr býtum. Já, þeir eigi það bara skilið!
Launamunur kynjanna hefur ekkert með vinnusemi að gera, hvað þá útsjórnarsemi eða ýtni. Hann er svik við samfélagið, rétt eins og skattsvikin og aflandseyjahugsanahátturinn. Launamunur kynjanna stafar nefnilega af því að við tökum ekki samfélagið okkur nógu alvarlega og virðum ekki almennar leikreglur þess.
Launamunur kynjanna stafar af því að okkur er sama.
Og hann verður eins eftir önnur 40 ár - altso heila mannsævi frá kvennafrídeginum - ef sinnuleysið heldur áfram.
Og þá verða stelpurnar mínar komnar yfir miðjan aldur, ýmist við það að hætta eða hættar á vinnumarkaði. Og meðalstrákurinn minn verður búinn að vinna sér inn að meðaltali heila skuldlausa 150 fermetra íbúð á besta stað umfram meðal stelpuna mína.
Sanngjarnt?
Já, segir samfélagið okkar.