Með kjúklingnum er hægt að nota afganga af grænmeti og bara því sem til er í ísskápnum þess vegna vildi Freyr ekki gefa upp nákvæmt magn af hverju hráefni fyrir sig fyrir sig. Allt fer eftir hvað til er í ísskápnum og magn af hverju fer eftir smekk.
- Kjúklingur niðurskorinn
- Udon núðlur
- Ferskir sveppir
- Gulrætur
- Rauð og græn paprika
- Blaðlaukur
- Þrjú egg
- Sesamolía
- Salt og pipar
- Hvítlaukur
- Laukur
- Vorlaukur
- Baunaspírur
- Mýrin, óáfengt saki (má sleppa)
- Soya sósa
- Fiskisósa
Núðlurnar eru rétt soðnar í nokkrar mínútur því þær eru forsoðnar og síðan settar til hliðar í skál. Eggin eru hrærð saman í skál. Kjúklingurinn skorinn niður í bita. Gulrætur skornar niður og einnig rauða paprikan. Eggin steikt uppúr sesamolíu á pönnunni. Eggin hrærð á annarri pönnu.
Meira um þáttina er að finna hér:
Horfa á þáttinn \"Keppnin\" Besti maturinn