Ingunn sendir Ingu Sæland líka kvæði: „Voru stelpur stykki tómt er stingandi væri í?"

Eins og Hringbraut fjallaði um í gær kom andinn yfir skáldkonuna Ingunni Sigmarsdóttur þegar fregnaðist um gömul samskipti þingmannsins Tómasar Tómassonar við félaga sinn varðandi kynlífsupplifanir hans í Tælandi. Ingunn birti langt frumort kvæði um þingmanninn, sem lesa má í fyrrnefndri frétt Hringbrautar.

Nú hefur Ingunn hins vegar snúið sér að formanninum Ingu Sæland. Hún rifjar upp orð sem um hana voru höfð á Klausturbar eins og frægt er orðið og kemst að lokum að þeirri niðurstöðu að formaðurinn sýni bæði hræsni og meðvirkni með Tómasi nú.

Svona er kvæðið:

Um húrrandi klikkaða kuntu
Á Klausturbar talað var.
En hvað með þó tælenska truntu
Tómas hitti á bar?

.

Ég er jú formaður flokksins
Fólkið virða mig skal.
Þó Tommi sakni ekki smokksins
og sóðalegt gerist hans tal.

.

Jóna og séra Jóna
jafningar teljast seint
og klúður flokksins flóna
er flókið og misvel meint.

.

Illmælgi um flokksins frúna
fordæma skulum við öll.
En tökum því tómlega núna
Þó Tómas gleðji sinn böll.

.

Fátæk og fislétt dama
fjarlægu landi í.
Henni er sjálfsagt sama
þó subbukarl gorti af því.

.

Voru stelpur stykki tómt
er stingandi væri í?
Telst það ennþá fínt og frómt
að fleipra og gorta af því?

.

Eru það bara fínar frúr
sem friðhelgi eiga að njóta?
Og þingmaðurinn tryggur trúr
í trausti þess má hrjóta?

.

Meðvirk er flokksins móðir
mærir hinn gamla mann.
Stuðningsmenn, styrkir, góðir
standa upp og verja hann.


I.V.S.