Skáldkonan Ingunn Sigmarsdóttir birti býsna skemmtilega vísu á Facebook-síðu sinni en tilefnið eru fréttir af bólförum þingmannsins Tómasar Á. Tómassonar, oft kenndum við Búlluna, í Taílandi.
„Ein dasamleg 25 ara ca 45 kg var ad yfirgefa herbergid smokklaust en byrjadi a nuddkonunni fyrr i dag kvoldid er ungt 20.21“ segir í skilaboðum sem Tommi sendi vini sínum árið 2014. Tommi deildi þeim sjálfur á Twitter eftir að hafa fengið veður af því að um þau yrði fjallað í fjölmiðlum.
Ingunn er býsna skemmtilegur penni eins og glögglega má lesa hér að neðan:
Nuddkonu mér fékk í morgun
Mikil var sælan þá.
Samdægurs seinna gegn borgun
sængaði annarri hjá.
.
Hún var svo létt og liðug.
Ég lét hana vigtina á.
Kornung, krúttleg og sniðug
í karlrembu veski að ná.
.
Svo var hún fátæk og fögur
fislétta stelpuskott.
Af matarskorti svo mögur.
en mikið var kynlífið gott.
.
Ég er svo vestrænn og vitur.
Valdið er allt hjá mér.
Hvernig hún stendur og situr
skipunum hlýða ber.
.
Mér finnst svo gaman að gorta.
Grobbað við vini ég hef.
Þó kunni mig skilning að skorta
skít í það bara ég gef.
.
Smart fannst mér smokklaus að ríða
Í smithættu pældi ekki hót.
Dýfði folanum fríða
í fallega hlýðna snót.
.
Ég er svo gamall og graður
gráðugur, ríkur og snjall.
Voldugur merkismaður
montinn, háttsettur karl.
.
Kræfur ég kræki í píu.
Kroppinn flottan ég hef.
Á fundum fæ ég mér kríu.
Á fullum launum þar sef.
.
I.V.S.