Hversu smár getur ráðherra orðið?

Það fer vel á því að tala við fólk eins og maður vonar að annað fólk tali við mann sjálfan.


Að ekki sé talað um hvernig annað fólk talar um mann; þar gildir líka gagnkvæm virðing.


Sá dómur forsætisráðhera yfir heilli þjóð um að hún sé veruleikafirrt er besta falli óvarlegur. Hann er kominn úr munni manns sem velur sér hvaða stríð sem er til að sýna kunnáttuleysi sitt í vopnaburði.


Forsætisráðherra sem talar svona um þjóð sína er á flótta undan henni, líklega sakir þess að hann er hræddur við hana.


Ráðherra sem talar með þessum hætti skilur nefnilega ekki inntak lýðræðisins, en næringarefni þess eru uppbyggjandi skoðanaskipti og virðing fyrir því að sem flest ábyrg sjónarmið komist að í umræðunni.


Fyrri forsætisráðherrar hafa dottið í þann pytt að uppnefna heilu og hálfu hópana úti í samfélaginu. Þeir hafa minnkað við það.


En hversu smár verður maður þá af því að uppnefna alla þjóð sína?