Píratar eru í stjórnmálum af heilindum. Stjórnmálaumræða þeirra er málefnaleg og rekin á mannamáli. Kjósendur skilja hvað þeir eru að fara og telja þá ekki líklega til að svíkja orð sín og loforð. Þeir eru aukin heldur óspjallaðir af valdabrölti, sérgæsku og spillingu. Framganga þeirra á Alþingi hefur sýnt að þar er komið merkilegt stjórnmálaafl utan úr bæ, sprottið úr grasrótinni og kemst einna næst því af öllum flokkum Alþingis að enduróma raddir fólksins á tímum eftirhrunsáranna; þau eru hæfilega villt en samt snyrtimennskan uppmáluð í orðum og æði.
Þetta er ef til vill meginástæðan fyrir því að Píratar klífa lóðréttan hamarinn í hverri skoðanakönnunni af annarri. Þeir eru eftirminnilegastir í huga fólks þegar það hugsar til Alþingis. Fylgi þeirra mælist nú 23,9%, borið saman við 12,8% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 23,4%, borið saman við 25,5% í síðustu könnun. Þetta eru stórtíðindi. Íhaldið er að víkja fyrir uppreisninni.
Píratar hafa aldrei þurft að fara í manninn og ætla sér það sennilega aldrei. Þeir eru nefnilega svo elskir að málefnum sínum að ekkert annað en skilyrðislaus hollusta við þau kemst að í huga þeirra og verkum.
Forkólfar annarra flokka verða að hugsa sinn gang. Þeir þurfa að gaumgæfa orð sín og breytni. Pólitískt gjamm og hártoganir, hvað þá svik og lygar og augljós hagsmunagæska eru stærstum hluta þjóðarinnar ekki að skapi.
Píratar eru í raun og sann að afeitra íslenska pólitík. Þeir eru enda sjálfstæðastir allra á Alþingi Íslendinga. Það stjórnar þeim enginn nema þeir sjálfir. Það er enginn yfir þeim sem togar í spotta. Hvorki menn né samtök, auður eða völd.
Og fólk tekur eftir þessu. Á meðan það sér Pírata í réttu ljósi sér það í gegnum hina.
Fylgi Pírata mælist nú 23,9%, borið saman við 12,8% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 23,4%, borið saman við 25,5% í síðustu könnun.