Flokksfólki úthýst

Ein athyglisverðustu ummæli helgarinnar féllu á Austurvelli á sunnudag þegar Jórunn Frímannssdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og einn frummælenda á mótmælafundinum upplýsti um samtal sitt og Davíðs Oddssonar fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins sem hún átti við hann uppi í Hádegismóum nýverið. Þar fór hún þess á leit við manninn, sem margir telja að stýri flokknum enn úr launsátri, að málamiðlun verði gerð í Evrópumálunum innan flokksins, svo ekki komi til fjöldaúrsagna úr flokknum. Davíð hafi þvertekið fyrir þau býtti og nánast hreytt því út úr sér að samtalinu loknu hvort Jórunn vildi ekki bara flýja yfir í Samfylkinguna.


Þetta samtal er lýsandi fyrir flokk sem er að lokast. Sjálfstæðisflokkurinn á sér um margt merka sögu í þjóðlífi landsmanna, ekki síst valdasögu, enda hefur hann haldið um stjórnartaumana í landinu lengst af lýðveldistímans. Drýgstan þennan tíma hefur hann verið tiltölulega víðsýnn flokkur, enda freistuðu margir fyrri formanna hans að leyfa breiðum hópi fólks með ólíkar skoðanir að njóta sín innan flokksins. Þá giltu einkunnarorðin stétt með stétt. Sjálfstæðisflokkurinn var á þessum tíma undir foryustu Ólafs Thors, Bjarna Benediktssonar, Jóhanns Hafstein, Geirs Hallgrímssonar og Þorsteins Pálssonar og jafnvel framan af formennsku Davíðs Oddssonar miklu fremur breiðfylking en innmúraður í sínu horni. Hann var meginafl og barðist fyrir frelsi einstaklingsins, fjölbreytni í atvinnulífi og vestrænni samvinnu.


Ein meginspurninganna í íslenskri pólitík þessi dægrin er hvert Davíð Oddsson er að leiða sinn gamla flokk. Telur hann flokkinn fremur eiga samleið með einræðisríkjum á borð við Rússland og Kína, fremur en lýðræðisþjóðum Evrópu? Telur hann flokkinn fremur eiga að verja hagsmuni þröngra sjónarmiða á vinnumarkaði fremur en að skapa sem flestum fyrirtækjum í iðnaði, nýsköpun og þjónustu samkeppnishæft vinnuumhverfi? Telur hann frelsi einstaklingsins eiga betur við þá fáu útvöldu sem kosta útgáfu Morgunblaðsins en allan almenning?


Bjarni Benediktsson situr uppi með laskaðan flokk. Hann hefur ekki stjórn á honum. Það er vont fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það er vont fyrir þjóðina.