Fagna ber framkominni tillögu forsætisráðherra um rýmri notkun þjóðfána Íslands í vörumerkjaskyni. Hún er þörf og tímabær - og enda þótt hún sé ekki ný af nálinni er eðlilegt að sjálfur forsætisráðpherra taki hér af skarið. Það er ekki hægt að bíða lengur.
Íslenski fáninn er Íslendingum mikilvægur. Hann er tákn þjóðar. Hann er okkur milkilvægt sameiningarmerki. En hann er ekki heilagur, ósnertanlegur eða yfir mannlegar athafnir hafinn.
Í reynd er hann bara grafísk hugdetta.
Þess vegna hefur verið á að giska broslegt að fylgjast með allri íhaldseminni í kringum íslenska fánann í gegnum tíðina. Hún er og hefur verið úr öllum takti tíðarandans; hlægileg og fánanum sjálfum síst til framdráttar.
Á meðan allar þenkjandi þjóðir hafa nýtt sér fána sinn sér til framdráttar í æ harðari samkeppni þjóðanna um sérstöðu og nýjungar hafa íslenskir embættismenn vart haft undan við að tukta til landsmenn í fánamálum.
Hvaðan kemur okkur allt það rugl?
Frjálslyndi forsætisráðherra í þessum efnum er því sérstakt fagnaðarefni.
Gömul embættismannaíhaldsemi á að vera eitur í beinum allrar framsóknar til frjálsari, víðsynni tíma.