Keppnin: besti maturinn

Það verður ekki beinlínis leiðinlegt að horfa á matarkeppnina sem er á dagskrá Hringbrautar alla miðvikudaga klukkan 20:00, en þar slær Vala Matt í pottana með hjálp fagurkeranna Alberts Eiríkssonar og Gunnars Helgasonar svo úr verður nýstárlegur matreiðsluþáttur.

\"Besti

Vala lýsir nýju þáttunum sínum svona: Í þáttunum Keppnin: Besti maturinn fáum við til okkar nokkra þjóðþekkta einstaklinga sem keppa um það hver gerir fljótlegasta,  einfaldasta og besta heilsuréttinn og besta eftirréttinn, en hráefnið má ekki kosta meira en samtals 3000 krónur. Í lokaþættinum verða svo valdir sigurvegarar þáttanna með allra bestu réttina.

Í fyrsta þættinum mæta þær Sigga Klingenberg og Díanna Ómel og þær búa til mjög einfaldan lambarétt og skyrdesert. Í skemmtilegu spjalli yfir matartilbúningnum rifja þær meðal annars upp hvernig það var að alast upp í sveit og hvernig maturinn hefur breyst frá þeim tíma. Sigga þó kornung sé aldist til dæmis upp við hefðbundinn þurrkaðan, súrsaðan og reyktan mat og úrvalið var ekki mikið á þeim tíma...ótrúlegt en satt, en það kemur svo í ljós í kvöld hverju Díanna Ómel vandist í eldhúsinu í æsku.

Keppnin: Besti maturinn er klukkan 20:00 á hringbraut í kvöld og endursýnd strax klukkan 22:00.