Spennandi hönnun og list í skúmaskoti

Sjöfn Þórðardóttir fær að venju til sín góða gesti í þáttinn Fasteignir og heimili í kvöld.

Í þættinum í kvöld verðum við með innlit í Skúmaskot til Heiðu, sem er fylgihluta hönnuður, en alls eru níu listamenn og hönnuðir sem sýna og selja hönnun sína í Skúmaskoti. Skúmaskot er fallegt og vinalegt listagallerí við Skólavörðustíginn í fáguðu húsi þar sem verslunin Fatabúðin var til húsa. Við hittum Heiðrúnu Jóhannsdóttur, sem ávallt er kölluð Heiða, og fáum innsýn í það sem í boði er þar. Í Skúmaskoti ræður fjölbreytnin ríkjum og þar er að finna margt fallegt fyrir heimilið.

\"\"

Við lítum til Kristjáns Andra Jóhannssonar sölu- og markaðsfulltrúa hjá EG skrifstofuhúsgögnum í Ármúlanum og fáum fræðslu um hversu mikilvægt það er að velja réttu stólana þegar við viljum setja heilsuna í forgang, hvort sem það er í vinnunni eða á heimilinu þegar unnið er. Einnig fer hann yfir hvernig borð, stólar og mottur eru í dag hönnuð til að hjálpa okkur að vera meira á hreyfingu við vinnu, sér lagi þegar við vinnum fyrir framan tölvuskjá.

\"\"

Gunnhildur Stella Pálmarsdóttir heilsumarkþjálfi, sem ávallt eru kölluð Gunna Stella, heimsækir okkur og fer yfir hvaða mistök við megum ekki gera á heimili okkar og í svefnherberginu.  Henni er það hjartans mál að við hugsum vel um heilsuna okkar og að við látum okkur líða vel heima hjá okkur. Að heimili okkar sé einfalt og þægilegt og við forðumst að hafa ofgnótt að hlutum út um allt sem truflar sálarfriðinn.

\"\"

Albert Eiríksson, matarbloggari og sælkeri með meiru ræðir við Sjöfn um Pálínuboð sem eru góð leið til að fá alla til að taka þátt þegar góða veislu gjöra skal.  Pálínuboð er sams konar boð og það sem á ensku er kallað potluck party. Þá kemur hver og einn með eitthvað og leggur til með sér á matar- eða kaffiborðið. 

Þátturinn Fasteignir og heimili er á dagskrá öll mánudagskvöld kl. 20:30 á Hringbraut - og jafnan ferskur, fjölbreyttur og með persónulegum blæ.

Horfðu á nýja stiklu fyrir þáttinn hér: