Gamaldags dúkkuvagnar heilla

Þessir fallegu handgerðu dúkkuvagnar fást hjá Hnyðju og eru íslenskt handverk. Hægt er að fá þá í fjórum litum; gammel rose sem er antík bleikur litur, lime grænum, sæbláum og rauðum. Gaman er að segja frá því að það fylgja líka með sængurföt. Dúkkuvagnarnir eru 51 sentimeter á hæð, lengdin er 60 sentimetrar og breiddin 20 sentimetrar.

Dúkkuvagnarnir eru einstaklega fallegir og tímalaus hönnun sem fanga augað. Hnyðja er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í nytja- og skrautmunum, að mestu unnum úr tré. Hver einasti hlutur er smíðaður af natni í höndum og lögð í hann mikil vinna og alúð í anda liðinna ára.

\"\"

Ávallt er leitast eftir að hafa efnivið eins náttulegan og umhverfisvænan og býðst hverju sinni. Þetta er þó eingöngu hugsjónavinna og hefur til dæmis ekki verið ofnæmis- eða öryggisprófað nema af fjölskyldunni sem framleiða. Olían er svokölluð „foodsafe“ olía, það er að segja olía sem má nota á eldhúsvörur og er bakteríufráhrindandi.

Hægt er að kynna sér vörurnar sem í boði eru nánar á heimasíðu Hnyðju.