Sendi óttari sms

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra segir að hið nána bandalag hans og Óttars Proppé hafi byrjað með sms-skilaboðum morguninn eftir kjördag. Hann hafi sent Óttari skilaboðin: ,,vaknaður?” og fengið til baka: ,,Er á fótum”. Í kjölfarið hafi hann hringt og spurt Óttar hvort ekki væri rétt að flokkarnir færu í nánara bandalag. Hér að neðan má sjá brot úr viðtali við Benedikt sem er á dagskrá Þjóðbrautar klukkan 21 á Hringbraut í kvöld.