Erjur milli hótels 101 og gamla bíós

Alls óvíst er hvort hægt verði að nota nýuppgert Gamla bíó til tónleikahalds vegna krafna eigenda Hótels 101, sem stendur við hliðina á bíóinu, um takmarkanir á hávaða frá húsinu.

Kröfur hóteleigandans geta sett rekstur Gamla bíós í uppnám, enda var endurgerð þess hugsuð í þá veru að þar væri hægt að bjóða upp á alhliða menningarsamkomur, þar á meðal tónleika af öllu tagi, svo sem rokktónleika. Tónlistarmenn hugsuðu sér enda gott til glóðarinnar þegar endurbætur voru hafnar á þessu sögufræga húsi við neðanvert Ingólfsstrætið, en meðalstórir tónleikasalir hafa verið mjög af skornum skammti eftir að Nasa var lokað. Þeir hafa bent á að staðir sem taka á bilinu 300 til 600 manns séu einkar hagkvæm stærð til tónleikahalds; Harpa þyki á stundum full til dýr, stór og ópersónuleg og litlir persónulegir staðir eins og Rósenberg standa ekki alltaf undir rekstri tónleika sem eitthvað kveður að.

Af þessum sökum horfðu tónlistarmenn vonglaðir til nýja salarins í Gamla bíói, enda er hann allur hinn glæsilegasti og sniðinn til tónleikahalds af öllu tagi.

En nú er sumsé komið babb í bátinn. Samkvæmt upplýsingum Hringbrautar er þegar byrjað að aflýsa áformuðum tónleikum í húsinu sakir krafna eiganda Hótels 101 um að setja svokallaðan \"limiter\" á hátalarakerfið. Það þýðir að styrkur hljóðkerfisins má ekki fara yfir 95 desibil. Það merkir með öðrum orðum að allir venjulegir popptónleikar eru óhugsandi á staðnum, svo sem næstu Gay Pride tónleikar sem fyrirhugaður voru í bíóhúsinu gamla í næsta mánuði, en nú er verið að leita að öðru húsnæði fyrir þá.  

Niðurstaðan er því þessi: \"Tónlistin verður látin lúffa fyrir kvartandi lundadúkkukaupandi túristum,\" eins og einn tónleikarahaldari orðaði það á dögunum, frekar fúll yfir því að flottasti tónleikasalur landsins verði aðeins nothæfur fyrir blokkflautu og fiðlu í friðsaömum brúðkaupsveislum.

Við þetta er því að bæta að Morgunblaðið í dag ræðir við Guðvarð Gíslason, eða Guffa, sem er framkvæmdastjóri Gamla bíós. Þar segir hann að heilbrigðisfulltrú Reykjavíkurborgar hafi hafnað tónleikum Páls Óskars á Hinsegin dögum þar sem ekki sé leyfilegt að auka hljóðstyrkinn vegna tónleikanna: \"Við höfum óskað eftir því að hótelið einangri herbergin betur hjá sér en hótelið hefur ekki verið til viðræðu um eitt eða neitt, \" segeir hann við blaðið og bætir við: \"Það hefur sent inn alls konar kærur og sífelldar kvartanir vegna hávaða, þó að við förum eftir því sem heilbrigðislöggjöfin segir til um,“ segir Guffi og bætir við að einhverjir tónlistarmenn hafi afbókað salinn vegna þessa.

Við þetta má bæta að rokktónleikar Samaris og Mammút fara fram í salnum annað kvöld samkvæmt auglýsingu, hver svo sem hávaðinn verður.