Catalina leitar stolinna demanta

Nokkrir menn réðust nýlega með ofbeldi á Catalinu Mikue Ncogo, eiganda tískuvöruverslunarinnar Miss Miss, og rændu hana demöntum, skartgripum og öðru lauslegu.

Catalina, sem er mikill fagurkeri, sér mest eftir dýrmætum skartgripum sem rummungarnir höfðu á brott með sér, þar á meðal forláta demantshring. Hringurinn tilheyrir tólf eðalsteinasetti sem hún saknar sárt.

Catalina hefur því auglýst eftir skartinu og heitir þeim sem kemur upplýsingum til lögreglu um hvar demantana er að finna fundarlaunum upp að allt að 400.000 krónum.

Catalina biður fólk á sölusíðum á netinu og gullsmiði um að hafa augun opin ef vera skyldi að þjófarnir reyni að koma skartinu í verð á Íslandi og hafa samband við lögregluna í síma 444 1000 ef eðalsteinana rekur á fjörur þeirra.

Mynd af demantinum sem leitað er að

\"\"