Zuckerberg tekur á sig alla ábyrgð

Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, segist sjálfur bera höfuðábyrgð á því að gagnaöryggi og einkalíf Facebook-notenda sé ekki nógu tryggt á samfélagsmiðlinum.
 
Í greinargerð sem hann sendi þingnefndum sem munu spyrja hann spjörunum úr á þriðjudag og miðvikudag - og ruv.is vitnar til í samantekt sinni í dag - viðurkennir Zuckerberg að hann hafi verið of bláeygur og ekki nógu meðvitaður um hve auðveldlega mætti misnota þennan samskiptavettvang, sem ríflega tveir milljarðar manna nýta sér í dag.
 

„Við gerðum okkur ekki nógu glögga grein fyrir ábyrgð okkar, og það voru mikil mistök. Það voru mín mistök, og ég harma þau,“ segir Zuckerberg í greinargerð sinni, sem viðskiptanefnd fulltrúadeildarinnar birti að kvöldi mánudags. „Ég stofnaði Facebook, ég stjórna fyrirtækinu og ég ber ábyrgð á því sem þar gerist.“

Zuckerberg ber vitni fyrir nefnd öldungadeildarþingmanna á þriðjudag og á miðvikudag mætir hann fyrir viðskiptanefnd fulltrúadeildarinnar. Báðar nefndir kölluðu hann til fundar við sig til þess að fá skýringar á því, hvernig breska greiningarfyrirtækið Cambridge Analytica gat komist yfir gögn 87 milljóna notenda og nýtt sér með ýmsum vafasömum hætti, og hvað hann og til hvaða aðgerða Facebook hyggist grípa til að tryggja persónu- og gagnavernd notenda sinna.

Í greinargerðinni segir Zuckerberg Facebook rekið áfram af „hugsjón og bjartsýni“ og þar hafi fyrst og fremst verið horft til alls þess góða sem af því geti hlotist, að tengja fólk úr öllum áttum. Hann viðurkennir jafnframt, að ekki hefði verið nóg gert til að „koma í veg fyrir að [Facebook] yrði notuð til ills. Það gildir um falsfréttir, erlenda íhlutun í kosningar og hatursorðræðu, rétt eins og um hugbúnaðarhönnun og gagnavernd,“ er haft eftir forkólfnum í samantekt ruv.is í dag.