Zika-veiran sögð geta valdið lömun

Franskir og pólínesískir vísindamenn telja sig hafa sönnur fyrir því að Zika-veiran, sem nú er landlæg í Brasilíu og víðar í Suður- og Mið-Ameríku, geti valdið fágætum en hættulegum taugasjúkdómi sem veldur lömunareinkennum.
 

Þetta kemur fram á fréttavef RÚV í morgun þar sem vitnar er í grein í læknatímaritinu The Lancet en þar hafa vísindamennirnir birt niðurstöður rannsóknar sem þeir gerðu á Zika-faraldri sem geisaði í Frönsku Pólynesíu frá október 2013 fram í apríl 2014. Segir í fréttinni nað á sama tíma hafi komið upp óvenju mörg tilfelli af téðum sjúkdómi sem kallast Guillain-Barré heilkennið, GBS, sem annars er afar sjaldgæft, eða alls 42.

Í 41 tilfelli reyndust viðkomandi einnig hafa smitast af Zika-veirunni. Þessi óvenjulega fylgni vakti grun um mögulegt orsakasamhengi, sem þeir telja sig nú hafa staðfest eftir miklar rannsóknir.

Í samantekt RÚV segir að niðurstöðurnar bendi til þess að um 24 af hverjum 100.000 Zika-smituðum muni að líkindum veikjast af GBS. Vitnað er til orða Björns Olsen, prófessors í faraldsfræðum við Uppsalaháskóla, sem segir í samtali við sænska ríkisútvarpið að þetta sé mun meiri fylgni en menn hefðu búist við og stjórnvöld í Brasilíu, Kólumbíu og annarstaðar þar sem Zika-veiran grasseri verði að bregðast við. Ljóst sé að fjöldi Zika-smitaðra sem komi til með að þurfa á sjúkrahúsdvöl og jafnvel gjörgæslu að halda geti orðið mun meiri en reiknað hefur verið með.

Guillain-Barres heilkennið leggst á ónæmiskerfið og ruglar starfsemi þess þannig að það ræðst á taugakerfið, einkum þann hluta sem stjórnar vöðvastarfseminni. Afleiðingarnar eru misalvarleg lömunareinkenni.

Haft er eftir Olsen í fréttinni að einkenni sjúkdómsins séu í flestum tilfellum \"einhverstaðar mitt á milli minniháttar lömunar og algjörrar lömunar.“ Í verstu tilfellunum geti sjúklingar hins vegar lamast svo mjög að þeir þurfi að vera mánuðum saman í öndunarvél áður en bráir af þeim. Þá sé alltaf hætta á því að einhverjir deyi af völdum GBS, ýmist vegna lömunarinnar sjálfrar, sýkinga á borð við lungnabólgu, sem rekja má beint eða óbeint til hennar, eða samspils hvors tveggja.