Orðrómur um hugsanleg landakaup og flugufregnir um fjárfestingaráform og önnur óljós áform kínverskra fjárfesta á Íslandi er ekki ný af nálinni. Samskipti alþýðulýðveldsins Kína og Íslands eru ekki ýkja mikil hvað svo sem menn vilja staðhæfa um þau samskipti. Ráðamönnum í Beijing hugnast þó ekki að slegið sé upp sem stórfrétt frásögnum um óljós áform einhverra manna sem sagður eru kínverskir auðmenn. Af og til ber töluvert á lausafregnum og sögusögnum um stórkarlaleg kínversk áform sem þó eiga sér enga stoð í veruleikanum og eru ekki á vegum Kínastjórnar.
Ráðamenn í Kína líta á samskipti við Ísland í stóru samhengi án þess þó að ráðamenn í Beijing séu beinlínis áhugalausir um Ísland. Um árið lét kínverskur auðmaður Huang Nubo mikið að sér kveða á Íslandi og síðan í Noregi með áformum um landakaup. Þessi áform hans runnu öll út í sandinn og ekkert hefur heyrst hvorki frá Huang Nupo né íslenskum vinum hans. Hann gerði þetta ekki í samráði við ráðamenn í Kína.
Í Viðskiptablaðinu er að finna stutta frétt sem segir að miðað við núgildandi reglur frá árinu 2014 geta þeir sem ekki eru borgarar með gilt ríkisfang á EES svæðinu ekki keypt eða leigt land umfram eina tvö hundruð og fimmtíu þúsund fermetra sem ekki er mikið jarðnæði. Þetta mál er því líkast til eins og sagt er - Ys og þys út af engu.