„yrsa var í skýjunum“

Ný íslensk kvikmynd, Ég man þig var frumsýnd í gær og fer í almennar sýningar á morgun, föstudaginn 5.maí.  

Myndin er byggð á samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur. Óskar Þór Axelsson leikstjóri og Ágústa Eva Erlendsdóttir, ein aðalleikona myndarinnar mættu til Lindu Blöndal á Þjóðbraut og sögðu Yrsu hafa verið yfir sig ánægða með útkomuna. Ágústa segist ekki hafa verið neitt draugatrúar en það hafi breyst eftir vinnuna með Óskari Þór. 

Óskar Þór leikstýrði áður kvikmyndinni Svartur á leik og einnig þremur þáttum af Ófærð. 

Önnur aðalhlutverk fara með þau Jóhannes Haukur Jóhannesson, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Anna Gunndís Guðmundsdóttir og Sara Dögg Ásgeirsdóttir.Framleiðendur eru Sigurjón Sighvatsson, Skúli Malmquist, Þórir Snær Sigurjónsson og Chris Briggs fyrir hönd Zik Zak Kvikmynda.