Metsöluhöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir var gestur Sigmundar Ernis í lestrarhestaþættinum Bókin sem breytti mér á Hringbraut í gærkvöld og kynnti þar bækurnar sem hafa haft hvað mest áhrif á hana í gegnum tíðina.
Þáttinn er hægt að skoða hér á hringbraut.is, en sérstaka athygli vekur að ein þeirra bóka sem hefur haft hvað mest áhrif á Yrsu er mikill doðrantur um smitsjúkdóma og afskræmingu fólks af völdum þeirra en þeirri skruddu kynntist Yrsa sem stelpa úti í Bandaríkjunum þar sem hún og systir hennar stálust til að skoða hryllinginn þegar pabbi, sem þá var í læknisnámi vestra, sá ekki til.
Þær stöllur urðu hugfangnar af öllum ógeðslegu myndunum og teikningunum í bókinni.
Önnur varð svo læknir síðar meir, hin glæpasagnahöfundur af bestu gerð.
Nýjasta bók Yrsu, Sogið er nýkomin út og fór beint í fyrsta sæti metsölulista Eymundsson.
Bókin sem breytti mér er frumsýnd öll fimmtudagskvöld á Hringbraut.