Slökkti youtube á sjálfsfróun almars?

Óvíst er hvernig sjálfsfróun Almars Atlasonar, 23 ára myndlistarnema endaði í gær, en allt eins er líklegt að forkólfar Youtube hafi lokað fyrir útsendingu úr glerkassa hans í húsakynnum Listaháskóla Íslands þegar holdið reis hvað mest.

Altént lagðist útsendingin á hliðina þegar Almar byrjaði að handleika lim sinn í glerkassanum seint í gær, en þar hefur hann dvalið allsnakinn í nokkra daga í beinni útsendingu og hefur mikill fjöldi fólks kíkt á kappann sem ætlar að vera í kassanum í heila viku og er ástæðan lokaverkefni hans í námskeiðinu Leiðir og úrvinnsla.

Áhorfendur hafa getað fylgst með Almari á Youtube pissa í flösku og skila af sér hægðum ofan í sérstaka rennu sem áföst er kassanum, en í gærkvöld þegar Almar sýndi sjálfum sér téðan kynferðislega áhuga virtist netsambandið vera eitthvað stopult og slitnaði Youtube-útsendingin nokkrum sinnum. 

Alls óvíst er því hvernig atlotin enduðu - og er þar Almar vísast einn til frásagnar.