Yoko ono kemur til íslands

Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í ellefta sinn með friðsælli athöfn á fæðingardegi Bítilsins John Lennon í kvöld klukkan níu. Kveikt verður á súluni til 8. desember sem er dánardagur hans.

Kona hans Yoko Ono býður þeim sem vilja þiggja upp á ókeypis siglingu yfir sundið og fríar strætóferðir eru í boði í kringum tedrunina.

Yoko Ono segir Ísland afar fallegan stað og að hún skynji mikla orku þegar hún sæki landið heim. í hraða nútímans sé auðvelt að gleyma ást og friði og skilningi og orkunni í náttúrunni.

Á Íslandi - og sérstkalega í Viðey - er hinsvegar auðvelt að muna eftir hvað þetta er mikilvægt fyrir alla og jörðina okkar. John hefði elskað það sagði Yoko Ono.  

[email protected]