Yismen frá Grikklandi: „Þeir skildu okkur eftir og fóru“

Fimm manna fjölskylda sem vísað var frá landi í nótt segir hópinn hafa verið skilinn eftir við flugstöðina við komuna til Grikklands í morgun og að ástandið þar sé slæmt.

Kjarninn greinir frá.

Yismen Hussein, ung kona úr fjölskyldunni, segir í samtali við blaðamann Kjarnans að nóttin hafi verið versta nótt lífs síns en líkt og greint hefur verið frá var íraska fjölskyldan handtekin í gær og þeim fylgt úr landi í skjóli nætur með leiguflugvél frá Keflavíkurflugvelli.

Að sögn Yismen er fjölskyldan peningalaus og allslaus á götunni í Grikklandi. „Þeir skildu okkur eftir og fóru,“ segir Yis­men í samtali við Kjarnann og heldur áfram: „Gerið það, hjálpið okk­ur, gerið það. Dauði er betri fyrir mig en að dvelja hér. Litla systir mín reyndi að svipta sig lífi því hún er svo örvingl­uð.“

Fjölskyldan viti ekki hvað bíður þeirra á morgun en að vinir á Íslandi hafi komið til aðstoðar svo þau hefðu þak yfir höfuðið í nótt á hóteli.

Fréttablaðið greindi frá því í gær að systur hefðu verið handteknar á leið heim úr skólanum en þær stunduðu nám í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. „Þegar ég og systir mín komum heim úr skól­anum í gær þá beið lög­reglan eftir okk­ur,“ segir Yis­men við Kjarn­ann.

Nánari umfjöllun um málið má nálgast á vef Fréttablaðsins.