Geislavirk spilliefni hafa fallið til í Reykjanesvirkjun frá 2006, án vitundar starfsmanna eða eftirlitsstofnana, eins og fréttastofa sagði frá í dag. Geislavarnir ríkisins hafa skoðað málið frá áramótum og starfslagi við virkjunina hefur verið breytt. Ekki var greint frá þessu opinberlega fyrr en eftir að fréttastofa hafði samband við Geislavarnir ríkisins í dag.
Árni sagði í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöld, sem hér er vitnað til, að fréttir af geislavirkninni hefðu komið á óvart. Hann tæki þó trúanlega orð Geislavarna um að ekki væri hætta á ferðum. Hann segir þó að greina hefði átt opinberlega frá þessu: \"Lögin eru þannig, lög um upplýsingarétt um umhverfismál að stjórnvöld hafa frumkvæðisskyldu, þeim ber að upplýsa almenning.\"
Hann gaf lítið fyrir orð forstjóra Geislavarna í fréttum að ekki hefði verið ástæða til að upplýsa almenning um þetta: „Það er vitleysa,\" sagði Árni í RÚV-fréttum og bætti við: \"Það á ekki að þurfa að almenningur leiti eftir upplýsingum sem hann veit ekki um.\"
Árni sagði að nú hlytu alþingismenn og umhverfisráðherra að kalla eftir upplýsingum um geislavirknina.