Beinni útsendingu frá Höfða er nú lokið. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fékk far með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Keflavíkur. Á Keflavíkurflugvelli mun Guðlaugur sitja fund með varaforseta Bandaríkjanna, Mike Pence. Varaforsetinn fer akandi og líkt og bent er á á RÚV verður án efa tafir á umferð á höfuðborgarsvæðinu.
Mike Pence hitti einnig Dag B. Eggertsson borgarstjóra. Dagur mætti á svæðið á hjóli og vakti það mikla athygli. Yfirmaður öryggismála var gáttaður að sjá Dag mæta hjólandi:
Yfirmaður öryggismála hafði þá þríspurt starfsmann sendiráðs Bandaríkjanna um Dag. Sjálfur lýsir Dagur þessu svona:
„I’ve never met a Mayor on a bike before, “ sagði yfirmaður öryggismála við Höfða, eftir að hafa þríspurt starfsmann sendiráðs Bandaríkjanna hvort ég væri (virkilega) borgarstjórinn í Reykjavík. „First time for everything,“ var hið eðlilega svar.“ - Það myndi útleggjast sem einhvern tímann er allt fyrst.
Þá náðist mynd þegar Dagur var að mæta hjólandi í Höfða.
“I’ve never met a Mayor on a bike before,” sagði yfirmaður öryggismála við Höfða, eftir að hafa þríspurt starfsmann sendiráðs Bandaríkjanna hvort ég væri (virkilega) borgarstjórinn í Reykjavík. “First time for everything,” var hið eðlilega svar. Mynd: @katrinat pic.twitter.com/4OBAW97fYx
— Dagur B. Eggertsson (@Dagurb) September 4, 2019