Yfirmaður fíknó hundsaði ábendingar

Karl Steinar Valsson, sem gegndi stöðu yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglu frá 2007 til 2014, var endurtekið upplýstur um grunsemdir í garð vel tengds lögreglufulltrúa hjá deildinni.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag en jafnframt segja heimildir blaðsins að Karli Steinari hafi láðst að láta rannsaka málið hjá Ríkissaksóknara eins og vera ber. Fréttablaðið segir að maðurinn hafi gegnt stöðu lögreglufulltrúa en hann hefur ítrekað verið færður til. Blaðið segir að Karl Steinar hafi sagt að ásakanir ættu við engin rök að styðjast og hefði málið verið rannsakað en það hafi ekki reynst rétt.

Karl Steinar lét af embætti yfirmanns fíkniefnadeildar í febrúar 2014 eftir sjö ára starf og hefur síðan verið búsettur í Hollandi þar sem hann gegnir stöðu tengifulltrúa Íslands hjá Evrópsku lögregluskrifstofunni, Europol.

„Í tíð hans sem yfirmanns fíkniefnadeildar bárust endurtekið ábendingar, bæði frá samstarfsmönnum sem og almenningi, þess efnis að umræddur lögreglufulltrúi væri í samstarfi við glæpamenn,“ segir Fréttablaðið sem hefur með rannsóknarblaðamennsku afhjúpað nýja hlið í málinu.