„Líkur á páskahreti eru yfirgnæfandi,“ segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Veðurvaktinni, enda þótt veður verði mjög skaplegt næstu daga með suðlægum vindum yfir landinu og mildu veðri.
Sunnanlands og vestan rignir með köflum fram á miðvikudag. Þurrt verður að mestu norðan- og austanlands en þar gæti jörð þó fölnað í éljagangi og kulda á skírdag og föstudaginn langa. Áður var útlit fyrir að strekkingsvindur fylgdi en nú er spáð hæglæti þó svo að kólni nokkuð þessa daga. En svo eru það páskarnir sjálfir. Á laugardag og einkum á páskadag er reiknað með hreti norðantil; þ.e. strekkingi og hríðarveðri. Frost nyrðra gæti farið niður í 3 til 8 stig. Sunnanlands verður hiti yfir frostmarki í sólinni að deginum, en næturfrost er afar líklegt.
\"Það er enn langt í páska og veðurspár geta breyst. Þó má telja líklegt að kólni um bænadagana og enn frekar um páskana,“ segir Einar Sveinbjörnsson í Morgunblaðinu í dag.