Að jafnaði missa yfir hundrað börn foreldri sitt á hverju ári hér á landi. Alls misstu 1007 börn foreldri sitt yfir 10 ára tímabil, frá 2009–2018. Hagstofa Íslands birti í dag upplýsingar um börn sem misst hafa foreldri, og er þetta í fyrsta sinn sem Hagstofan birtir slíkar upplýsingar.
Um þetta var fjallað á viðamiklu málþingi í dag sem fjallaði um rétt barna, stöðu þeirra og þarfir við fráfall foreldris undir yfirskriftinni „Hvað verður um mig?“
Birna Dröfn Jónasdóttir frá Nýrri Dögun sorgarmiðstöð og Sr. Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur eru gestir Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þau tóku bæði þátt í málþinginu og munu ræða þessi mál nánar í þættinum í kvöld, sem hefst klukkan 21:00.
Birna Dröfn var 12 ára þegar hún missti föður sinn, þegar hann drukknaði á Spáni. Birna Dröfn flutti erindið „Og svo hrundi heimurinn,“ þar sem hún ræddi sársaukann sem fylgdi því að missa föður sinn. Hún fór einnig yfir úrræðaleysið sem blasti við fjölskyldunni í kjölfarið, ekki síst vegna þess að móðir hennar glímdi við gífurlega sorg og gat því erfiðlega hugsað um sjálfa sig, Birnu eða þrjú systkini hennar. Því hafi hún þurft að fullorðnast fljótt, ekki komin á táningsaldur.
Vigfús Bjarni hefur sem sjúkrahúsprestur oft veitt börnum sem hafa lent í foreldramissi aðstoð og ráðgjöf. Hann flutti erindið „Hvað verður um mig?“, samnefnt málþinginu, þar sem hann fjallaði um rétt barna, stöðu þeirra og þarfir við fráfall foreldris.
Staða barna sem aðstandendur krabbameinssjúklinga
Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands er einnig gestur Lindu í 21 í kvöld. Hún tók sömuleiðis þátt í málþinginu í dag og ræðir þessi mál nánar í þættinum.
Sigrún skoðaði stöðu barna sem eru aðstandendur krabbameinssjúklinga og flutti erindið „Íslenskar rannsóknir á stöðu barna sem aðstandendur krabbameinssjúklinga.“ Þar fór hún í saumana á því hvað þurfi til þess að skýra og skoða betur rétt og stöðu barna, hversu mikilvægt er að skapa lagalega umgjörð til að hlúa að þeim og fór yfir hvort þurfi að skoða stöðu barna sem eiga krabbameinssjúkt foreldri sérstaklega.