Yfir hálf milljón frá áramótum

Erlendum ferðamönnum heldur áfram að fjölga milli ára. Aukningin var 23,6% í janúar, 42,9% í febrúar, 38,1% í mars og 32,5% í apríl. Heildarfjöldi ferðamanna frá áramótum er um 513 þúsund, eða 35,2% fleiri miðað við fjölda ferðamanna á tímabilinu janúar til maí árið 2015. Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu.

Einnig kemur fram að langflestir koma frá Bandaríkjunum en Bretar eru næstflestir ferðamanna.

Bandaríkjamönnum, Bretum, Kanadamönnum, Þjóðverjum og Frökkum hefur fjölgað mest á milli. Þessar fimm þjóðir báru uppi aukninguna í maí að miklu leyti milli ára eða rúmlega 73% af heildaraukningu.