HM-þátttakan í Rússlandi er mikil peningamaskína fyrir KSÍ. FIFA mun greiða KSÍ yfir 900 milljónir króna vegna þátttöku íslenska landsliðsins á HM í Rússlandi, en keppnin hefst eftir um einn mánuð. Mikil stemning er að myndast í kringum keppnina hér á landi og fjölmargir sem ætla út til Rússlands. Velta KSÍ var um 3 milljarðar króna árið 2016 þegar íslenska liðið komst í úrslitakeppnina á HM og fékk KSÍ þá yfir 800 milljónir króna frá UEFA það árið. Velta KSÍ var um 1,4 milljarðar króna í fyrra og hagnaður fyrir greiðslur til aðildarfélaganna um 128 milljónir kr. KSÍ er orðið stórt fyrirtæki.
Yfir 900 milljónir til ksí vegna hm
Fleiri fréttir
Nýjast