Rúmlega sextíu fyrirtæki munu skrifa undir yfirlýsingu um loftslagsmál í Höfða næstkomandi mánudag og enn bætist í þann hóp, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg í gær.
Með undirritun sinni skuldbinda fyrirtækin sig til að setja sér markmið og fylgja þeim eftir með aðgerðum sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og minnka myndun úrgangs.
Yfirlýsingin sem skrifað verður undir hljóðar svo:
Við undirrituð ætlum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif með markvissum aðgerðum.
Þjóðir heims standa nú frammi fyrir afleiðingum loftslagsbreytinga. Sameinuðu þjóðirnar gegna forystuhlutverki í að greina vandann, takast á við hann og aðlagast breyttum aðstæðum.
Borgir og bæir ásamt fyrirtækjum af öllum stærðum, verða sífellt mikilvægari þegar kemur að því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og standast þau markmið sem sett hafa verið um losun þeirra.
Á Íslandi er ein helsta áskorunin mengandi samgöngur og losun úrgangs. Við ætlum að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að:
1. draga úr losun gróðurhúsalofttegunda
2. minnka myndun úrgangs
3. mæla árangurinn og gefa reglulega út upplýsingar um stöðu ofangreindra þátta.
Í hópi þeirra fyrirtækja sem ætla með yfirlýsingu og aðgerðum að sýna samfélagslega ábyrgð í verki eru flest stærstu fyrirtæki landsins og stórar stofnanir eins og háskólarnir. Áhrif þessa sameiginlega átaks geta því orðið umtalsverð.
Reykjavíkurborg og Festa, miðstöð um samfélagsábyrð fyrirtækja, halda utan um verkefnið og var aðildarfyrirtækjum Festu, stofnunum og fyrirtækjum Reykjavíkurborgar og 300 stærstu fyrirtækjum á Íslandi boðin þátttaka í verkefninu og hafa þau frest til og með 10. nóvember til að skrá sig.