Aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara gegn níu fyrrverandi stjórnendum og starfsmönnum Kaupþings hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, en óhætt er að segja að hér sé á ferðinni eitthvert viðamesta dómsmál síðari tíma, en búist er við meðferðin taki minnst mánuð.
Það segir sína sögu um umfang málsins að 50 manns hið minnsta verða kallaðir til sem vitni, en málið þykir að hálfu saksóknara vera grafalvarlegt. Fram kemur í ákæru að brotin séu umfangsmikil, hafi verið þaulskipulögð og staðið yfir í langan tíma og varði gríðarlega háar fjárhæðir.
Meðal ákærðu í málinu eru Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings og Heiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings en þeir sitja nú báðir inni á Kvíabryggju vegna margra ára dóma fyrir markaðssvik í Al Thani-málinu, svo og Magnús Guðmundsson fyrrverandi stjórnandi bankans í Lúxemborg sem einnig hlaut dóm í málinu.
Stóra markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings svipað nokkuð til Al Thani málsins, en ákærðu eru sakaðir um að hafa stjórnað virði hlutabréfa í bankanum, svo að segja handstýrt því með því ýmist að auka eða draga úr seljanleika bréfananna, allt eftir því hvað hentaði bankanum og stjórnendum hans á þeim tíma. Um hrein sýndarviðskipti hafi því verið að ræða að mati saksóknara.
Verði ákærðu í málinu fundin refsing mega þeir búast við 2ja til 5 ára fengelsisvist.