Yfir 3.000 svindlbílar hér á landi

3.647 bílar frá Volkswagen eru með svindlbúnað hér á landi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Heklu - umboðsaðila VW hér á landi. Flestir þeirra eru Skoda eða 1.854 bílar. 1.129 eru Volkswagen-fólksbílar, 348 atvinnubílar og 316 Audi bílar.
 
Í yfirlýsingunni segir að þegar þýsk yfirvöld hafi samþykkt tæknilegar lausnir verði þær útbúnar til innleiðingar innan alls EES-svæðisins. „Í kjölfarið verður haft samband við hvern og einn viðskiptavin sem málið snertir og hann upplýstur um hvernig hægt sé að bæta losunarbúnað bílsins.“

Í yfirlýsingu sem bílaumboðið birti á vef sínum var almenningur beðinn afsökunar á því að Volkswagen hafi misnotað traust hans. Volkswagen vinni að því hörðum höndum að greiða úr frávikum í tilteknum hugbúnaði dísilvéla.

Málið snýst um að í ákveðnum bifreiðum frá bílaframleiðandanum er hugbúnaður sem slekkur á mengunarvarnarkerfi sínu nema þegar hann er mengunarprófaður. Hugbúnaðurinn er í 11 milljónum bifreiða með ákveðinni tegund dísilvéla um allan heim.