Yfir 20 koma frá írak og sýrlandi

Fimm flóttafjölskyldur, alls 23 einstaklingar munu flytja til Ísafjarðarbæjar, Súðavíkur og Bolungarvíkur, segir í tilkynningu velferðarráðuneytisins.

Í hópnum eru tíu fullorðnir einstaklingar, ellefu börn og tvö ungmenni eldri en 18 ára. Þetta er annar samningurinn sem gerður er á þessu ári um móttöku flóttafólks frá Írak og Sýrlandi sem kemur til Íslands í samræmi við óskir Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, samtals 42 einstaklingar. Hluti hópsins kemur til landsins í dag en hinir sem eftir eru koma í næstu viku. Auk þessa fólks eru væntanlegir til landsins síðar í þessum mánuði 10 einstaklingar frá Úganda sem staðsettir eru í Kenýa.

Þetta er í annað sinn sem Ísafjarðarbær tekur á móti hópi flóttafólks, áður var það árið 1996.

Sveitarfélögin hafa undirbúið móttöku fólksins í nánu samstarfi við velferðarráðuneytið og Rauða krossinn á Íslandi.