Yfir 1800 starfsmenn reykjavíkurborgar fara í verkfall á morgun - mun hafa mjög mikil áhrif á leikskólastarf

Samninganefndir Eflingar og Reykjavíkurborgar hittust hjá ríkissáttasemjara í morgun. Bar sá fundur ekki árangur og eru því yfir 1850 félagsmenn Eflingar sem starfa hjá borginni á leið í verkfall í hádeginu á morgun. Næsti fundur samninganefndar Eflingar og Reykjavíkurborgar hefur verið boðaður klukkan þrjú á miðvikudaginn næstkomandi. 
 
Verkfallsaðgerðir starfsfólk Reykjavíkurborgar munu hefjast klukkan 12:30 á morgun og munu þær standa alveg til miðnættis. Miklar raskanir munu verða ýmislegri starfsemi innan Reykjavíkurborgar eins og leikskólastarfi, en yfir 1000 manns á leikskólum Reykjavíkur munu leggja niður vinnu. Þá mun sorphirða og velferðarþjónusta í Reykjavík einnig skerðast. Efling hefur boðað til fleiri verkfalla á næstu dögum.
 

Í samtali við RÚV segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, að enginn árangur hafi verið á fundinum í morgun. „Það kom ekkert fram af hálfu borgarinnar sem að býr til neinn viðræðugrundvöll.“

Hér að neðan má sjá boðaðar verkfallsaðgerðir Eflingar á næstu dögum. Verði ekki samið fyrir 17 febrúar næstkomandi munu meðlimir Eflingar fara í ótímabundið verkfall.

- Þriðjudagur 4. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59.

- Fimmtudagur 6. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.

- Þriðjudagur 11. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59.

- Miðvikudagur 12. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.

- Fimmtudagur 13. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.

- Mánudagur 17. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og ótímabundið eftir það.