Fimmtíu boðnir velkomnir

Stefnt er að því að flóttafólk sem boðið verður til Íslands komi snemma á næsta ári. Stjórnvöld hafa ákveðið að taka við fimmtíu flóttamönnum á næsta ári. Ákvörðun þessi byggir á tillögum íslensku flóttamannanefndarinnar að höfðu samráði við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. 

Fólkið er frá Sýrlandi og frá Kenýa. Stríð hefur geysað á Sýrlandi frá árinu 2011 og ekki sér fyrir enda þess. Fólkið frá Kenýa flýr fordóma en ekki stríð. Nánar er sagt frá þessu á vef Velferðaráðuneytisins.

 

 

[email protected]