Xi jinping getur setið til æviloka

Svo til allir þingmenn á kínverska þinginu greiddu í dag atkvæði með breytingu á stjórnarskrá landsins sem gerir forseta landsins heimilt að sitja lengur en tvö kjörtímabil.
 
Með þessari breytingu getur Xi Jinping setið á forsetastóli það sem hann á eftir ólifað. Ella hefði hann þurft að láta af embætti árið 2023.2.958 þingmenn voru breytingunni samþykkir. Tveir greiddu atkvæði á móti og þrír sátu hjá.
 
Breytingin er sögð færa forsetanum núverandi forseta meiri völd en tíðkast hafa í landinu um langt árabil, eða alveg frá því Mao Tse Tung sat að völdum sem fyrsti forseti Kínverska alþýðulýðveldisins.
 

Þetta var fyrsta breytingin sem gerð hefur verið á kínversku stjórnarskránni í fjórtán ár. Fyrirfram var gert ráð fyrir að hún yrði samþykkt með miklum meirihluta.