Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag?
Þannig hljóðar spurning nýrrar skoðanakönnur 365 miðla sem Fréttablaðið kynnir í dag.
Halldór Halldórsson oddviti Sjalfstæðisflokksins segir að fylgi flokksins sé á hreyfingu þar til fullljóst er hvaða aðrir flokkar bjóða fram. Halldór gefur ekki kost á sér í næstu kosningum.
Flokkur borgarstjórans Dags B. Eggertssonar - Samfylkingin - mælist með 13,7% eða þriðja mesta fylgið.
En Vinstri græn mælast með næst mest fylgi á eftir Sjálfstæðisflokknum eða 17,8%.
Nýr flokkur Flokkur fólksins mælist með 7,1% og Viðreisn með 5,8%.