Wow: styður samkynhnneigð - tf-gay

Flugfélagið WOW hefur skýrt eina af flugvélum félagsins TF-GAY og vill með skrefinu styðja réttindabaráttu samkynhneigðra.

Þetta kemur fram í frétt á Gayiceland.is.
Skúli Mogensen, forstjóri WOW, rekur í viðtali við miðilinn að skrefið hafi verið stigið vegna hins nýja áfangastaðar, San Francisco en borgin er rómuð fyrir frjálslyndi. Einn flugmanna WOW hafi fengið hugmyndina og hann hafi stutt hana heils hugar.


Katrín Oddsdóttir mannréttindalögfræðingur fagnar líkt og fleiri skrefinu hjá WOW og skrifar á facebook:
\"Ég mun ekki stíga fæti framar í gagnkynhneigðar flugvélar.\"