Móðir Finnboga Rúts, íslenska mannsins í París sem upplifði að kona hans, Caroline, fékk tvö skot í sig í hryðjuverkaárásinni í París þar sem hún sat á kaffihúsi, segir litla sögu á facebook, þar sem hún hrósar Wow flugfélaginu í hástert.
„Sonur okkar hjóna, Finnbogi Rútur, sá sem lenti í hryllingshringiðunni í París, og unnusta hans Caroline höfðu splæst í íslandsmiða með WOW yfir jólin. Nú er útséð að þau geta ekki nýtt sér þá miða. Starfsfólk WOW sýndi fádæma lipurð, skilning og samúð þegar þau báru vanda sinn á borð þeirra. Málið farsællega leyst. Í allri tortryggninni og fúkorðaflauminum á fb verð ég að kasta inn þessari kveðju. WOW flugfélag, þið eruð WOW,“ segir Þórunn Hreggviðsdóttir alsæl með þjónustuna.
Hringbraut ræddi fyrst fjölmiðla við Finnboga Rút í París eftir árásina og hefur síðan fylgst með bata Caroline. Aðgerð sem hún fór í tókst vel og sömu sögu má segja um vinkonu hennar sem sat með henni á kaffihúsinu og fékk skot í bakið. Báðar eru á öruggum batavegi.
Það hlýtur að gleðja hjörtu landsmanna að Wow flugfélagið hafi greitt götu Íslendingsins og konu hans eftir hræðilega reynslu.