WOW air er farið á hausinn. Þetta staðfesti Skúli Mogensen í tölvupósti til allra starfsmanna flugfélagsins í morgun.
Einnig hefur þetta verið staðfest á heimasíðu WOW, þar sem er greint frá því að flugfélagið hafi hætt starfsemi og að því sé búið að fella niður öll flug þess.
Í tilkynningu frá Samgöngustofu kemur slíkt hið sama fram. Þar er farþegum bent á að kanna möguleika á flugi hjá öðrum flugfélögum. Samkvæmt viðbragðsáætlun munu flugmálayfirvöld kanna vilja annarra flugfélaga til að aðstoða farþega með svokölluðum björgunarfargjöldum í samræmi við yfirlýsingu Alþjóðasamtaka flugfélaga, IATA.
„Mun aldrei geta fyrirgefið sjálfum mér“
Í tölvupósti Skúla til starfsmanna skrifar hann: „Ég hélt aldrei nokkurn tímann að það kæmi að þessum degi en við neyðumst til að hætta starfsemi og skila flugrekstrarleyfi okkar. Þetta er líklega það erfiðasta sem ég hef nokkru sinni gert en raunveruleikinn er sá að við runnum út á tíma og höfum því miður ekki náð að tryggja fjármagn til fyrirtækisins.“
„Ég mun aldrei geta fyrirgefið sjálfum mér fyrir að hafa ekki brugðist við fyrr þar sem það er ljóst að WOW var stórkostlegt flugfélag og við vorum á réttri leið með að framkvæma frábæra hluti að nýju. Ég vildi óska þess að við hefðum meiri tíma og gætum gert meira þar sem þið eigið öll svo miklu betra skilið og mér þykir það afskaplega leitt að setja ykkur í þess stöðu,“ skrifar Skúli einnig til starfsmanna.