Rekstrarhagnaður WOW air fyrir árið 2015 nam 1,5 milljörðum króna og er það mikill viðsnúningur frá árinu á undan þegar flugfélagið tapaði 700 milljónum króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins þar sem greint er frá því að tekjur ársins 2015 hafi numið um 17 milljörðum króna, en það er 58% aukning miðað við árið 2014 þegar tekjurnar voru 10,7 milljarðar króna. Þá jókst rekstrarhagnaður án afskrifta (EBITDA) um 3 milljarða á milli ára.
Í tilkynningunni segir að með tengingu áfangastaða í Norður-Ameríku við áfangastaði í Evrópu hafi leiðakerfi flugfélagsins styrkst til muna sem hefur leitt til betri nýtingu flugþota félagsins ásamt betri sætanýtingu:
\"Árið 2015 var í alla staði frábært. Við keyptum okkar fyrstu flugvélar, hófum flug til Norður-Ameríku, kynntum flug til Kaliforníu og skiluðum góðum hagnaði þrátt fyrir að vera enn að fjárfesta mjög mikið í öllum innviðum og áframhaldandi vexti félagsins. Það liggur gríðarleg vinna á bak við þennan árangur og ég er fyrst og fremst stoltur og þakklátur fyrir að fá að vinna með öllu því hæfileikaríka fólki sem starfar hjá WOW air og hefur gert þennan árangur að veruleika. WOW air hefur skapað sér mjög gott nafn erlendis sem leiðandi lággjaldaflugfélag og höfum nú sannað að lággjaldamódelið virkar einnig á lengri flugleiðum. Í því felst gríðarlegt tækifæri til áframhaldandi vaxtar sem við ætlum að nýta okkur,“ er haft eftir Skúla Mogensen, stofnanda og forstjóra WOW air í tilkynningunni.