Wintris-stuðningur geti rýrt traust

Nýr forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fráfarandi forsætisráðherra, sé ekki ósáttur við málalok.

Aftur á móti kunni að vera að hann sjálfur unni að gjalda fyrir að hafa stutt Sigmund Davíð í Wintris-málinu.

Hann óttast ekki að það að ráðherra sem komi í stað Sigurðar Inga sé úr innsta ráðgjafahring Sigmundar Davíðs.

Þetta kom fram í beinu fréttaspjalli Sigurðar Inga við fréttastofu Rúv rétt í þessu en hann tekur formlega við völdum á ríkisráðsfundi með forseta á morgun.

Sigurður Ingi, forsætisráðherra morgundagsins, svaraði fáu efnislegu þegar Rakel Garðarsdóttir fréttastjóri Rúv spurði um umboð meirihlutans til trúnaðarstarfa í ljósi spillingarmála en þrástagaðist á þingmeirihluta, 38 þingmönnum.