Wintris-málið neikvætt fyrir flokkinn

Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknar, sækist eftir öðru sæti á lista Framsóknar í Suðurkjördæmi, sem er það sæti sem hún vermir nú. Þetta tilkynnir hún á Facebook í kvöld. En hún gerir gott betur.

„Komin heim að loknu kjördæmisþingi á Hvolsvelli. Þingið samþykkti með um 90% atkvæða að krefjast þess að flokksþingi verði flýtt og það haldið fyrir næstu Alþingiskosningar,“ skrifar Silja Dögg.

Þar voru greidd atkvæði um hvort flýta eigi flokksþingi eða ekki, en í kjördæmi formannsins var slík tillaga felld.

„Ég greiddi atkvæði með tillögunni þar sem ég tel algerlega nauðsynlegt að flokksmenn endurskoði stefnuna og þau mál sem við viljum setja á oddinn fyrir næstu kosningar. Okkur hefur gengið vel að ná okkar málum fram á sl þremur árum og því er um algert lúxusvandamál að ræða.“

Þá að formanni flokksins:

„Það er einnig bráðnauðsynlegt að forysta flokksins endurnýji umboð sitt til áframhaldandi forystu hjá flokksmönnum, þar sem Wintris málið hafði verulega neikvæð áhrif á það traust sem flokksmenn, og aðrir, báru til forystu flokksins.

Við eigum ekki að óttast umræðuna heldur taka henni fegins hendi. Opin og lýðræðisleg umræða er grundvöllur þess að stjórnmálaflokkur þrífist og dafni.“

Silja Dögg vonar að allt fari vel hjá Framsókn: „Ég vona að okkur Framsóknarmönnum beri gæfa til að leysa innri mál flokksins farsællega á næstu dögum og vikum. Komum síðan sameinuð og sterkari en aldrei fyrr inn í kosningabaráttuna.“